VR félagar!!!!!!

Sælt veri fólkið. Ég er með spurningar til félagsmanna VR. Hvað eru margir búnir að kjósa? Ég vissi að eftir 3 daga voru um 1800 manns búnir að nota atkvæði sín. Var að lesa grein DV. í dag um lúxusinn og flottræfilshátt stjóranna. Ætla félagsmenn ekki að fylkja liði og hreinsa þessa gelti út? Búið er að moka fjármunum undir þetta lið og lifir það í vellystingum af iðgjöldum félagsmanna. Hvernig í andskotanum haldið þið félagsmenn að þessir menn hafi hundsvit á að tryggja ykkur mannsæmandi laun? Þeir búa í sínum fílabeinsturnum, keyrandi á múltímilljóna lúxuskerrum þurfandi ekki einu sinni að drullast til að borga eldsneytið á 8 GATA TRYLLITÆKJUM, Á YKKAR KOSTNAÐ. Hvað ætlið þið að gera??? NOTIÐ ATKVÆÐI YKKAR. Ef ekki, þá er ykkur ekki viðbjargandi. Svona hrægammatímabili á að ljúka straks. Ert þú með skitinn 120 þús. kall á mánuði? Skoðaðu mánaðarlaun þessara manna. Sæl að sinni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband