Hreingerning.

Sælt veri fólkið. Ég vil óska V.R. félögum til hamingju með hreingerninguna í forystuliði sínu. Ég verð nú samt að lýsa undrun minni yfir því algera áhugaleysi sem félagsmenn sýndu með hörmulegri þátttöku í þessum kosningum. Af 25 þús. félagsmönnum kusu skitin 6000+. Við skulum vona að fólk verði ekki svona áhugalaust í væntanlegum þingkosningum. Nú vil ég sjá met þáttöku þegar að þeim kemur. Allt undir 90% atkvæðabærra manna er fíaskó. Sama hreingerningin verður að fara fram í gegnum allt samfélagið. Sýnum í verki að okkur stendur ekki á sama. Sæl að sinni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband