Skilið lyklunum.!

Sælt veri fólkið. Það var algjör snilld að hlusta á hafnfirðinginn í Kastljósi kveldsins áðan. Þar sýndi hann það, svart á hvítu, að það marg borgar sig, fyrir fólk með hátt skuldahlutfall á íbúðum sínum, að krefja lánadrottna um uppboð strax á eigninni. Hann er búinn að reikna sig bláan í framan til að finna bestu leiðina út úr síhækkandi skuldum vegna verðtryggingarinnar og kemst alltaf að sömu niðurstöðu. SKILA LYKLUNUM og hætta að borga þennan mesta þjófnað sem sögur fara af, að undanskildum útrásarþjófunum sívinsælu. Ef hann ætlar að þrjóskast við að greiða af "láninu" hefur hann, eftir 1 ár, bætt á sig fleiri milljónum í viðbót í skuld. Þetta er snilldar mótleikur við þessu ráni og er ekki ólöglegt. Hann ætlar síðan að fara á leigumarkaðinn þar sem hann þarf ekki að hafa áhyggjur af svona rugli meir. Gaman verður að fylgjast með ef fleiri taka sig til og nýta sér þennann möguleika. Fer eins og ég spáði, þegar bankarnir komu á íbúðalánamarkaðinn, þeir yrðu stærsta fasteignafélag landsins.

Sæl að sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband