Handtökur straks!!!!

Sælt veri fólkið. Eins og komið hefur fram, að um 100 milljarðar hafi verið sendir úr landi skömmu fyrir yfirtöku Kaupþings, ber að handtaka straks alla þá sem komu nálægt þessum færslum. Þessir milljarðar eru á reikningum sem erfitt er að komast að hverjir eiga vegna reglna sem gilda í viðkomandi löndum. Farbanni verður að demba á yfirþjófana samstundis. Ef ekki verður gengið straks til verka, er klárlega komið í ljós að ekki gilda sömu lög um Jón og Séra Jón. Nú er tími kominn á að sýna þessari yfirstétt hnefann. Svei mér þá, það er komið blóðbragð í kjaftinn á manni. Ég heimta harðar aðgerðir umsvifalaust. Þeir skulu aldrei sleppa með þessa peninga úr landi. Loka þá inni þar til þeir færa peningana heim. Síðan dæma þá fjandans til. Sæl að sinni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband